Spegilmyndin

Spegilmyndin er mannlífsþáttur um kvenheilsu, heilbrigðan lífsstíl, mataræði, hreyfingu, tískustrauma, líkamsvirðingu og fegrunar- og lýtaaðgerðir. Höfundur og þáttastjórnandi er Marín Manda Magnúsdóttir, menningarmiðlari og nútímafræðingur en framleiðandi sjónvarpsþáttanna er Orca Films. Hlaðvarp Spegilmyndarinnar lítur dagsins ljós samhliða sjónvarpsseríu 2 af Spegilmyndinni sem sýnd verður á Stöð 2 og Stöð 2+ í mars og apríl 2023. Í hlaðvarpinu ræðir Marín Manda við viðmælendur sína um það helsta í heilsu og fegrunariðnaðnum á Íslandi líkt og hún gerir í sjónvarpsþáttunum. Hún skyggnist inn í ýmis áhugaverð málefni sem eru áberandi í umræðunni en viðmælendur eru af ýmsum toga. Ber þar að nefna húðlækna, næringarfræðinga, sálfræðinga, heilsuráðgjafa, snyrtifræðinga, þjálfara, kvensjúkdómalækna, lýtalækna og aðra sérfræðingar sem tengjast viðfangsefninu hverju sinni.

Listen on:

  • Podbean App
  • Spotify

Episodes

Sunday Aug 13, 2023

Að þessu sinni er textíl og fatahönnuðurinn Linda Björg Árnadóttir gestur hlaðvarps Spegilmyndarinnar. Linda er einnig stofnandi Scintilla sem er íslenskt hönnunarfyrirtæki þekkt fyrir frumlega hönnun á mynstrum á vefnaðarvöru og fylgihlutum fyrir heimilið. Linda segir frá vegferð sinni sem hönnuður, árunum í París og áhugaverðu doktorsnámi sínu í félagsfræði tískunnar. Hún segir það vera augljóst mál að tíska er fyrst og fremst tæki til breytinga. 
 
Bakhjarl þáttarins er húðvörumerkið Neostrata sem fæst í öllum helstu apótekum en einnig hjá Hverslun.is - hér!
 

Monday Jul 24, 2023

Að þessu sinni kom Lára G. Sigurðardóttir doktor í lýðheilsuvísindum í spjall. Lára hefur hellt sér út í hinar ýmsu forvarnar rannsóknir til þess að fræðast betur um það hvernig við getum fengið sem best út úr lífinu. Hún rekur einnig Húðina skin care klíník sem nú flytur í nýtt og stærra húsnæði og mun bjóða upp á nýjungar og meðferðir til að viðhalda húðinni í sem besta ástandi og vinna gegn öldrunareinkennum. Nýlega gaf hún út Húðbókina sem er ansi áhugaverð. Skemmtilegt spjall við fróða konu sem er algjörlega dásamleg. 

Wednesday Jul 12, 2023

Ingeborg Andersen grasalæknir er gestur Spegilmyndarinnar að þessu sinni. Hún lærði vestrænar grasalækningar í London og heldur úti síðunni jarðviska.is. Hún er einnig hluti af hópnum Nærðar konur. Í þessum þætti ræðir hún um starf sitt sem grasalæknir, hormónakerfi kynjanna sem er gjörólíkt, jurtir sem fegra og styðja við líkamann og nýja móðurhlutverkið sem er svo magnað - og fleira. 
 
* Þessi þáttur er í boði NEOSTRATA. Þessar frábæru húðvörur fást hjá Hverslun.is og í öllum helstu apótekum. 

Wednesday Jun 28, 2023

Sigrún María Hákonardóttir er gestur Spegilmyndarinnar að þessu sinni. Hún er viðskiptafræðingur, náms - og starfsráðgjafi og einka-og hóptíma þjálfari sem kennir hjá Reebook. Sigrún er mögnuð kona sem tók örlitla u- beygju þegar hún upplifði kulnun og skellti sér því í jóga nidra kennaranám og Dáleiðsluskóla Íslands. Hún deilir sögu sinni í þessu spjalli en í dag starfar hún sem klínískur dáleiðari og sérfræðingur í hugrænni endurforritun - ásamt þjálfuninni og vill hjálpa fólki að takast á við hugann til að líða betur. 
 
#Þessi þáttur er í boði Neostrata en hlustendur Spegilmyndarinnar geta verslað sér þessar frábæru húðvörur hjá Hverslun með 20% afslætti (út Júní)

Friday Jun 16, 2023

Við kynnumst Jóhannesi lýtalækni hjá Klínikinni og heyrum sögu hans um námið, árin erlendis og ástríðuna fyrir fegrunar lýtalækningum. Hann ræðir opinskátt um mismunandi aðgerðir, gefur góð ráð og fræðir um áhætturnar sem ber að hafa í huga þegar farið er í aðgerð. 
 
* Bakhjarl þáttarins er húðvörumerkið Neostrata en hlustendum Spegilmyndarinnar býðst 20% afsláttur af Neostrata hjá Hverslun.is út júní. 

Thursday Jun 08, 2023

Halldóra Skúladóttir markþjálfi talar opinskátt um eigin upplifun af breytingarskeiðinu en hún heldur úti Instagram miðlinum Kvennaráð og deilir þar fræðandi molum um kvenheilsu sem tengjast aðallega breytingaskeiðinu og andlegri líðan. Fræðandi og skemmtilegt spjall við frábæra konu. 
 
* Þátturinn er í boði Neostrata en hlustendur Spegilmyndarinnar geta verslað þessar virku húðvörur hjá Hverslun með 20% afslætti út júní. Afsláttarkóðinn er: Spegilmyndin

Thursday Jun 01, 2023

Erla Björnsdóttir sálfræðingur og svefnráðgjafi er mörgum kunn en hún er hafsjór af fróðleik þegar kemur að svefninum. Hér ræður hún um mikilvægi svefnins sem er ein af grunnstoðum andlegrar og líkamlegrar heilsu og gefur góð ráð. Hún kynnir einnig til leiks nýtt íslenskt svefn app sem hún hefur verið að vinna að undanfarin 2 ár. 

Tuesday May 23, 2023

Dagný Berglind og Eva Dögg reka vellíðunarsetrið Reykjavík ritual og ræða við Marín Möndu um hvernig þær hafa látið draumana rætast innan veggja Rvk. ritual með því að skapa pláss sem konur. Þær ræða um mikilvægi sjálfsræktar, fallega samfélagið sem hefur skapast í kringum Self mastery námskeiðin og kítlandi sleipiefnið sem konur hafa staðið í röðum til að eignast. 

Thursday May 11, 2023

Geir Gunnar Markússon næringar-og matvælafræðingur starfar hjá NLFÍ. Hann berst gegn alls kyns öfgum og hindurvísindum í næringar- og heilsufræðum og er óhræddur við að segja sína skoðun þegar kemur að heilsuspillandi lífstíl. 
 
Þessi þáttur er í boði NEOSTRATA (húðvörur). Hlustendur geta nýtt sér 20% afsláttarkóða hjá Hverslun.is á Neostrata vörum út júní. Afsláttarkóðinn er: "Spegilmyndin" 

Friday May 05, 2023

Karin Kristjana förðunarfræðingur eigandi Nola er mjög fróð um húðvörur og húðina. Í þessum þætti fræðir hún okkur um ýmis áhugaverð innihaldsefni í vörum og gefur góð ráð til að viðhalda fallegri húð. Þessi þáttur er í boði Neostrata.

Copyright 2023 All rights reserved.

Podcast Powered By Podbean

Version: 20241125