![Inga Kristjánsdóttir næringarþerapisti - Góð ráð til að komast í fitubrennsluform og koma lagi á blóðsykurinn](https://pbcdn1.podbean.com/imglogo/image-logo/16135761/spegi_3viz59_300x300.jpg)
Thursday May 16, 2024
Inga Kristjánsdóttir næringarþerapisti - Góð ráð til að komast í fitubrennsluform og koma lagi á blóðsykurinn
Inga Kristjánsdóttir næringarþerapisti er nýjasti gestur Marín Möndu í Spegilmyndinni. Hún hefur sérhæft sig í að leiðbeina fólki varðandi blóðsykurstjórnun og sykurlöngun, með það að markmiði að bæta líðan og heilsu fólks - til að koma í veg fyrir bólgusjúkdóma. Hún deilir reglulega hinum ýmsu fróðleiksmolum á samfélagsmiðlunum og heldur í dag netnámskeið fyrir fólk sem vill huga betur að heilsunni sinni, sigrast á sykrinum og jafnvel komast í fitubrennsluform. Hér er á ferðinni ákaflega skemmtileg kona sem brennir fyrir því að láta gott af sér leiða og fræða fólk um blóðsykurójafnvægi sem hún telur vera einn helsti heilsufaraldur þessarar aldar.